Ég er fasteignasali hjá Háborg og elska að hjálpa fólki í gegnum kaup og sölu fasteigna. Ég legg áherslu á skýr samskipti, heiðarlega ráðgjöf og að horfa alltaf á heildarmyndina, bæði eignina og fjármálin.

Fáðu skýra mynd af stöðunni þinni á nokkrum mínútum.
Frá fyrstu hugmynd að afhendingu.
Heiðarleg ráðgjöf og skýr stefna til að ná sem bestum árangri.
Aðstoð við kaupverð, tilboð og fjármögnun.
Raunhæft verðmat byggt á markaðnum og eigninni þinni.
Förum yfir lánamöguleika, greiðslubyrði og hvað er raunhæft.
Skoðum lánsrétt og hvernig þú getur nýtt viðbótarsparnað.
Ertu ekki viss um næsta skref? Förum yfir stöðuna saman.
← Flettu til hliðar til að sjá fleiri eignir →
Það er það sem skiptir mig mestu máli.
"Tinna vinnur af mikilli fagmennsku og leggur sig alla fram fyrir viðskiptavini sína! Hún hélt okkur vel upplýstum í öllu söluferlinu og aðstoðaði okkur síðan við hvert skref í leit að nýju heimili. Hún sá um verðsamanburð, kauptilboð og lánaráðgjöf, og passaði upp á að tímalínur í kaupum og sölu stemmdu fullkomlega. Tinna fær okkar bestu meðmæli."
"Við fengum Tinnu fasteignasala til að selja fyrir okkur eignina okkar. Við erum svakalega ánægð með vinnuna hennar. Hún studdi vel við okkur í gegnum allt ferlið og það var ómetanlegt að hafa hana með okkur í þessu. Hún er bæði vandvirk og fagleg. Við mælum eindregið með henni."
"Tinna gaf okkur faglega ráðgjöf og setti hlutina í samhengi sem hjálpaði okkur að taka upplýstar ákvarðanir um húsnæðislánið okkar. Hún var vel undirbúin og með gott viðmót. Mæli eindregið með Tinnu."
"Við vorum að kaupa okkar fyrstu eign og fengum frábæra aðstoð frá Tinnu. Þar sem við höfðum enga reynslu í öllu þessu ferli var það ómetanlegt að fá Tinnu til þess að leiða okkur í gegnum allt ferlið. Ekkert nema hjálpsemin, fagleg og hlý. Gætum ekki mælt meira með henni. Takk fyrir allt."
"Samskipti okkar seljenda við Tinnu Bryde hafa verið mjög jákvæð. Hún er fagleg í sínu starfi og hélt okkur vel upplýstum í öllu söluferlinu."
"Ég leitaði til Tinnu til að fá rýni á núverandi fasteignaláni og hvort það væru einhver annar lánamöguleiki hagstæðari fyrir mig. Fékk til baka faglega rýni á mínu láni og stöðunni á markaðnum. Tinna benti mér einnig á leiðir til þess að lækka höfuðstólinn. Mæli með Tinnu, fagleg þjónusta."
"Tinna veitti okkur frábæra aðstoð við að skoða fasteignakaup á Íslandi og möguleika á fjármögnun, þar sem við búum erlendis. Hún útskýrði ferlið og kom með gagnleg ráð sem hjálpuðu okkur. Það skemmir heldur ekki fyrir hversu liðleg og þægileg hún er í öllum samskiptum – alltaf fagleg og hlý. Við mælum 100% með henni fyrir alla sem vilja góða aðstoð í fasteigna- og lánamálum!"
"Ég leitaði til Tinnu sem fyrsti kaupandi. Mér þótti hún mjög traust og virkilega gott að leita til hennar. Ég fékk skothellt álit og ráðleggingar við mat á eign og uppsetningu kauptilboðs. Ég mæli eindregið með Tinnu fyrir þá sem vilja vandaða ráðgjöf í fasteignakaupum."
"Við fengum Tinnu til þess að selja fyrir okkur og ég get heilshugar mælt með því að hafa hana með sér í liði. Hún er liðleg, hreinskilin og talar við okkur á mannamáli, sem einfaldar allt. Til þess að toppa þetta er hún með frábæran ljósmyndara og auglýsingin greip ótrúlega marga þó við værum að selja í einskonar frosti. Svo var ótrúlega dýrmætt að geta ráðfært sig við hana þegar við vorum að semja um kaup á annarri eign. Við fengum fasteignasala, sérfræðing og stuðningsmanneskju allt í einum pakka."
← Flettu til hliðar til að sjá fleiri →
Ertu að velta fyrir þér næstu skrefum eða vilt fá skýra mynd af stöðunni? Sendu mér skilaboð — ég er alltaf til í að fara yfir málin með þér.