Til sölu

Grænaborg 2, 190 Vogar

Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi

79.900.000 kr.Til sölu
137fermetrar
3svefnherbergi
2baðherbergi
Grænaborg 2, 190 VogarFjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
137 fm
Stærð
4ra
Herbergja
3
Svefnherbergi
2022
Byggingarár

Myndir af eigninni

Um eignina

Glæsileg 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og stór verönd til suðurs – Grænaborg 2
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Grænaborg 2.
Um er að ræða íbúð í 10 íbúða vandað fjölbýlishúsi byggt árið 2022, hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt í samstarfi við Sir Arnar Gauta. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum trefjasementsplötum sem gera það einstaklega viðhaldslítið.

-  Sérinngangur og stór verönd til suðurs
-  Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð
-  Vandaðar innréttingar frá AXIS, Corian borðplötur og AEG tæki
-  Rafhleðslustöð sem tilheyrir íbúðinni


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Íbúðin er 137,8 fm samkvæmt HMS og nýtur einstakrar útiaðstöðu með stóra verönd til suðurs.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp. Inn af forstofu er geymsla.
Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með góðri vinnuaðstöðu og miklu skápaplássi. Úr stofu er útgengt á stóra verönd til suðurs sem býður upp á góða aðstöðu til útiveru.
Eldhús er sérlega vandað með innréttingu frá AXIS, Corian borðplötu frá Orkus og innbyggðum heimilistækjum frá AEG, þar á meðal innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum frá AXIS.
Úr hjónaherbergi er aðgengi að einkabaðherbergi. 
Baðherbergin eru bæði flísalögð og búin vandaðri innréttingu frá Ísleifi Jónssyni. Á baðberbergjum er sturta, salerni, handlaug og innrétting. 
Þvottahús er rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt innréttingu með skúffum.

Geymsla og lóð:
Á lóðinni er 12 fm skúr sem fylgir íbúðinni og nýtist vel til geymslu.
Rafhleðslustöð fyrir rafbíl tilheyrir íbúðinni.

Húsið:
Fjölbýlishúsið var byggt 2022 og hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (KRARK) í samstarfi við Sir Arnar Gauta.
Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum trefjasementsplötum. Íbúðirnar eru búnar þreföldu gleri, loftræstikerfi og LED lýsingu.

Hverfið:
Grænaborg er í nýju og vaxandi íbúðahverfi í Vogum sem hefur byggst upp á undanförnum árum. Hverfið er rólegt og fjölskylduvænt með fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Í nágrenninu er bæði leik- og grunnskóli og áform eru um frekari uppbyggingu skóla og þjónustu samhliða stækkun hverfisins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Hefur þú áhuga? Hafðu samband.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Tinna, löggiltur fasteignasali hjá Háborg.

Hringja núna
Tinna
Tinna Bryde
Löggiltur fasteignasali
Grænaborg 2, 190 Vogar